• Um deildina
  • Liðin
  • Styrktaraðilar
  • Fréttir
Tilkynningar
Equsana deildin 2022 - Ráslisti fyrir slaktaumatölt Útfarastofu Íslands
Kidka
Equsanadeildin 2022 - Ráslistar í fimmgangi Málningar
Stjörnublikk

893 3600

[email protected]

Fréttir

Næsta mót í Áhugamannadeild Spretts, Equsana deildinni 2019 er tvöfalt - Fljúgandi skeið og slaktaumatölt

Skrifað þann Mars 04 2019
  • Print
  • Netfang
Takið frá fimmtudaginn 7 mars þegar næsta mót í Áhugamanndeild Spretts, Equsana deildinni 2019 fer fram.
Eitt mest spennandi mót vetrarins verður á fimmtudaginn 7 mars þegar knapar í Equsana deildinni 2019 keppa í tveimur greinum á einu kvöldi.

Allir fimm knapar hvers liðs taka þátt í þessu kvöldi, þrír keppa í slaktaumatölti og tveir í fljúgandi skeiði í gegnum höllina.

Í boði verður veisla fyrir áhorfendur þar sem keppni hefst á forkeppni í slaktaumatölti, síðan fer fram skeiðið og dagskráin endar á úrslitum í slaktaumatöltinu.

Það er mikið í húfi fyrir keppendur enda tvöföld stig í boði og í þessum greinum getur allt gerst.

Þð eru Zo-on styrkir báðar greinar kvöldins.

Veislan byrjar kl. 19:00 og húsið opnar kl. 17:30. Snillingarnir okkar í eldhúsi Spretts munu reiða fram kótilettu veislu.

Vð hvetjum alla áhugamenn um hestamennsku að taka kvöldið frá, koma í Sprettshöllina, njóta góðra veitinga og horfa á spennandi keppni.

Aðgangur er frír.

Ráslistar verða birtir á miðvikudag.
Upp
© 2015 Áhugamannadeildin. Allur réttur áskilinn. Hestamannafélagið Sprettur
YJSimpleGrid Joomla! Templates Framework official website
  • Um deildina
  • Liðin
  • Styrktaraðilar
  • Fréttir