• Um deildina
  • Liðin
  • Styrktaraðilar
  • Fréttir
Tilkynningar
Equsana deildin 2022 - Ráslisti fyrir slaktaumatölt Útfarastofu Íslands
Kidka
Equsanadeildin 2022 - Ráslistar í fimmgangi Málningar
Stjörnublikk

893 3600

[email protected]

Fréttir

Kynning liða Equsana deildin 2018

Skrifað þann Janúar 28 2018
  • Print
  • Netfang
Áhugamannadeild Spretts, Equsana deildin 2018, hefst 8 febrúar n.k. og þar með hefst fjórða
keppnisárið í þessari frábæru mótaröð.

Mótaröðin verður sú allra stærsta og sterkasta til þessa. Í ár var ákveðið að bæta við einu liði til
viðbótar vegna gífurlegar aðsóknar að deildinni. Það voru því fjögur lið sem dregin voru út í útdrætti
deildarinnar í september. Sextán lið mæta til keppni í vetur með samtals áttatíu knapa skráða. Þrír
knapar úr hverju liði keppa í hverri grein fyrir liðið sitt og það eru því fjörtíu og fimm knapar og
hestar sem mæta í hvert mót.

Deildin hefst með keppni í fjórgang fimmtudaginn 8 febrúar kl. 19:00. Sem fyrr er aðgangur ókeypis
og fólk hvatt til að mæta í Sprettshöllina til að njóta flottra sýninga og góðra veitinga.

Dagskrá vetrarins er eftirfarandi:
Fimmtudagur 8 febrúar – Fjórgangur
Fimmtudagur 22 febrúar – Fimmgangur
Fimmtudagur 8 mars – Slaktaumatölt og flugskeið í gegnum höllina
Fimmtudagur 22 mars – Tölt – Lokamótið

Fyrstu fjögur liðin sem við kynnum til leiks eru lið Blue Lagoon, Garðatorgs, Heimahaga og Barka.
Upp
© 2015 Áhugamannadeildin. Allur réttur áskilinn. Hestamannafélagið Sprettur
YJSimpleGrid Joomla! Templates Framework official website
  • Um deildina
  • Liðin
  • Styrktaraðilar
  • Fréttir