• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Umhverfisdagur Spretts 2016

Skrifað þann Apríl 17 2016
  • Print
  • Netfang
grasNæstkomandi þriðjudag, 19. apríl, verður umhverfisdagur Spretts. Markmiðið með þessum degi er að efla umhverfisvitund Sprettara með því að fá alla félagsmenn til að taka til í umhverfi sínu og bæta umgengni almennt. Á þessum degi er lögð áhersla á að taka til utandyra, kringum húsin okkar og í umhverfinu en ekki inni í húsunum. Tiltektardagurinn er mikilvægur dagur á hverju vori fyrir hverfið okkar þar sem margar hendur koma saman og taka til eftir veturinn.

Áformað er að hefjast klukkan 17:00 en um klukkan 19:00 verður pítsa og gos í boði upp í félagsheimili fyrir duglega Sprettara.

Sprettarar hjálpumst að og tökum höndum saman næstkomandi þriðjudag við að gera glæsilegt hverfi enn glæsilegra.

Umhverfisnefndin.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir