• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Dymbilvikusýningin í kvöld - forsala

Skrifað þann Mars 23 2016
  • Print
  • Netfang

forsalaHin frjálslega og skemmtilega Dymbilvikusýning Spretts fer fram í kvöld. Að venju verða ræktunarhrossin í forgrunni, en meðal búa sem hafa boðað komu sína eru Fetsbúið, Eystri-Hóll, Hofsstaðir í Garðabæ, Koltursey og Kjarr en þaðan koma Stálabörn til að leika listir sínar. Þá munu kraftmiklir stóðhestar gleðja augun, m.a. þeir Hreyfill frá Vorsabæ og Ljósvaki frá Valstrýtu. Töltgrúppan, hópur 70 hestakvenna frumflytur sitt fyrsta sýningaratriði sem verður án efa tilkomumikið að sjá. Þá verður hin hefðbunda ræktunarkeppni hestamannafélaganna sem er alltaf stórskemmtileg og íþróttamaður- og kona Spretts verða heiðruð. Og ekki má gleyma skeiðkeppninni og söngatriðunum sem fullkomna fjörið á þessari léttu sýningu.

Forsala aðgöngumiða er hafin og fer fram í Samskipahöllinni, hjá Magga Ben, sími 893-3600. Húsið opnar kl 18:00 en sýningin hefst kl 19:30.

Sjáumst í Samskipahöllinni í kvöld!
dymbilvika

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir