• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Félagshesthús Spretts.

Skrifað þann Desember 15 2015
  • Print
  • Netfang
flottur hestur
Sprettur mun í vetur bjóða ungum félagsmönnum uppá aðstöðu í svokölluðu Félagshesthús Spretts.
Með þessu erum við að styðja við það unga fólk í félaginu sem á sinn eigin hest en hefur þörf á aðstöðu og aðstoð til að stunda sína hestamennsku.


Í hesthúsi félagsins við Heimsenda 1, sem Kópavogsbær hefur úthlutað Spretti, verða 8-10 pláss í boði fyrir aldurshópinn 12-20 ára á verulega niðurgreiddu verði.

Verð pr. hest er kr. 17.500 á mánuði og innifalið í því verði er hey, spænir og gjöf. Hver og einn mun bera ábyrgð á sínum hesti m.a. við umhirðu, járningu osfrv.

Þeir sem hafa áhuga á að vera með hest í félagshesthúsi Spretts í vetur geta sent póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Þar þarf að koma fram nafn, kennitala, tölvupóstur og símanúmer aðstandanda.

Framkvæmdarstjóri 

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir