• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Skráning á helgarnámskeið hjá Antoni Páli opin.

Skrifað þann Nóvember 27 2015
  • Print
  • Netfang
Anton Páll Níelsson
Helgina 19. og 20.desember mun Sprettur halda helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni.
Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska.

Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.
Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.

Námskeiðið verður haldið laugardaginn 19.des og sunnudaginn 20.des. í Samskipahöllinni í Spretti.
Kennslan fer fram í einkatímum, 45mín., báða dagana, á milli kl.9 og 17.
Auk þess er mælst til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.

Einungis eru í boði 8 pláss.

Verð kr.32000.kr pr þátttakenda. Skráning verður opin til og með 10.des.

Skráning fer fram í gegnum http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add)

Hægt verður að kaupa sig inn á áhorfendapalla og fylgjast með kennslunni, 2500kr pr dag. (hámark 20 manns)

Fræðslunnefnd Spretts






Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir