• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Æskulýðsbirkarinn til Spretts!

Skrifað þann Nóvember 07 2015
  • Print
  • Netfang

aeskulidsbikarSprettur hlaut í ár æskulýðsbikarinn sem LH veitir á hverju ári til þess hestamannafélags sem þykir hafa skarað framúr með sínu starfi að æskulýðsmálum. Valið byggist á starfi æskulýðsnefnda félaganna og þeim skýrslum sem bera starfinu vitni, en nefndirnar senda inn skýrslur sínar í október á hverju ári. 

Hestamannafélagið Sprettur er vel að þessari viðurkenningu komið. Starfið var fjölbreytt, mikið og ýmsar nýjungar krydduðu frábæra dagskrá æskulýðsnefndarinnar í félaginu. Æskulýðsmálin eru eitt það þýðingarmesta starf sem félögin hafa á sinni könnu, enda skilar öflug æskulýðsstarf öflugum hestamönnum.

Til hamingju Sprettarar!

Þessi félög hafa hlotið Æskulýðsbikar LH síðan byrjað var að veita hann árið 1996:

2015 - Sprettur
2014 - Fákur
2013 - Sindri
2012 - Sleipnir
2011 - Hörður
2010 - Logi
2009 - Dreyri
2008 - Þytur
2007 - Máni
2006 - Léttir
2005 - Andvari
2004 - Blær
2003 - Fákur
2002 - Smári
2001 - Máni
2000 - Freyfaxi
1999 - Hörður
1998 - Sörli
1997 - Gustur
1996 - Léttir

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir