• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Tilkynning frá Íslandsmóti - leiðrétting

Skrifað þann Júlí 15 2015
  • Print
  • Netfang
arnorogstraumur


Vegna takmarkana á útreikningi í Kappa, forritið sem heldur utan um einkunnagjafir á hestamótum, hefur komið í ljós að Arnór Dan og Straumur frá Sörlatungu urðu jöfn Jóhönnu Margréti Snorradóttur og Stimpli frá Vatni að stigum sem samanlagður sigurvegari ungmenna í fjórgangsgreinum. 

Arnór Dan og Jóhanna Margrét deila því með sér titlinum sem samanlagður sigurvegari ungmenna í fjórgangsgreinum.

Mótaskýrsla í Kappa greindi eingöngu frá einum sigurvegara og leyfði ekki tvo jafna í skýrslunni. Tölvunefnd LH hefur verið greint frá þessari villu og mun hún verða löguð hið snarasta í Kappa.

Beðist er afsökunar á þessum leiðu mistökum.

Til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn Arnór!

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir