• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

FEIF Youth Camp í Þýskalandi 2015

Skrifað þann Mars 10 2015
  • Print
  • Netfang
FEIF

FEIF Youth Camp í Þýskalandi 2015
Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Camp sumarbúðirnar verða haldnar dagana 28. júní – 5. júlí 2015 í Berlar í Þýskalandi.

Þetta eru sumarbúðir fyrir hestakrakka á aldrinum 13 - 17 ára á árinu og markmið þeirra er að kynna krökkum frá aðildarlöndum FEIF fyrir (hesta)menningu annarra þjóða og að hitta ungt fólk með sama áhugamál.

Umsækjendur þurfa að hafi einhverja reynslu í hestamennsku, vera félagar í hestamannafélagi og skilji og geti talað ensku.

Búðirnar eru haldnar í Reitschule Berger í Bestwig-Berlar sem er 150 km fyrir austan Dusseldorf.

Meginþema búðanna í ár verður Sirkus æfingar án hesta. Eftir vikuna verður sett upp sýning sem þátttakendur taka þátt í.

Það sem krakkarnir munu hafa fyrir stafni í Þýskalandi er sem dæmi:
 Heimsókn í hið fræga hestasafn Warendorf í Munster.
 Dagur með heimsmeisturunum Silke Feuchtofen og Jolly Schrenk
 Heimsókn í skemmtigarðinn „Fort Fun" (www.fortfun.de)
 Heimsókn í járnnámu sem er í nágrenninu
 Einn til tveir dagar í æfingum á hestum.

Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2015 og skulu umsóknirnar berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir þann tíma.
Í umsókn þarf að koma fram nafn, heimili, kt, sími, félag, reynsla af hestamennsku, ljósmynd og stutt frásögn af umsækjanda.

Þátttökugjald er 590 € og hefur hvert land rétt til að senda 2 þátttakendur, en einnig verður biðlisti ef sæti losna.
Flugfargjald er ekki innifalið í þátttökugjaldinu.

Kveðja frá Æskulýðsnefnd LH

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir