• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Hraunhamars slaktaumatölt á fimmtudaginn

Skrifað þann Mars 02 2015
  • Print
  • Netfang
gluggarogglerspretturHraunhamars slaktaumatölt er næst á dagskrá í Gluggar og Gler deildinni og spennustigið að hækka bæði hjá keppendum og áhorfendum. Mótið verður á fimmtudagskvöldið 5 mars í Sprettshöllini og hefst keppni kl. 19:00. Mikill metnaður er í keppendum og heyrst hafa skemmtilegar sögur af æfingum. Ljóst að við eigum eftir að fá að sjá skemmtilegar sýningar og flotta hesta.

Áhorfendur hafa ekki látið sitt eftir liggja í mótaröðinni og gaman að sjá stuðninginn sem knapar fá af pöllunum.

Húsið opnar kl. 17:30 og sem í fyrri mótum mun einvala lið Sprettara sjá um að reiða fram veitingar í Veislusalnum okkar á góðu verði. Í boði verða m.a. eðalsúpa ala Sprettur, pizzur og margt annað. Ljóst er að enginn fer þyrstur eða svangur heim að kvöldi loknu

Við hvetjum alla áhugamenn um hestamennsku að taka kvöldið frá, koma í Sprettshöllina, njóta og horfa á spennandi keppni.

Aðgangur er frír.

Ráslistar verða birtir á miðvikudaginn 4 mars.

Hlökkum til að sjá ykkur öll.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir