• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Ræktunardagur Hrossaræktarfél. Spretts

Skrifað þann Febrúar 09 2015
  • Print
  • Netfang
sprettskorinnRæktunardagur Hrossaræktarfélags Spretts 14.febrúar 2015 í reiðhöll Spretts.


Dagskráin er sem hér segir: 

  • Kl. 08-12. Forskoðun kynbótahrossa. Dómari: Kristinn Hugason, fyrrv.hrossaræktarráðunautur BÍ.
  • Kl. 12-13.30 Hádegishlé. Fræðsluerindi: Þorvaldur Kristjánsson , ábyrgðarmaður hrossaræktarsviðs RML ehf
  • Kl.14-16.30. Folaldasýning. Dómarar: Þorvaldur Kristjánsson og Daníel Jónsson
  • Kl. ca 21:00 á Þorrablóti Hestamannafélagsins Spretts: Uppboð á folatollum

Nánar:

Forskoðun kynbótahrossa : fer fram í Reiðhöll Spretts kl 08-12. Dómari Kristinn Hugason fyrrv. hrossaræktarráðunautur. Við skráningu þarf að gefa upp IS númer, nafn, lit, foreldra og ræktanda. Skráningargjald er 1500 kr fyrir félagsmenn í Hrossaræktarfélagi Spretts, 2000 fyrir aðra. Greitt í reiðufé á staðnum. Skráning er öllum opin.

Skráning hjá: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. í síðasta lagi 11.febr. kl 20:00


Hádegishlé og fyrirlestur: Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður hrossaræktarsviðs RML ehf.

Folaldasýning: fer fram í Reiðhöll Spretts kl 14-16.30. Dómarar verða Þorvaldur Kristjánsson og Daníel Jónsson. Verðlaun verða veitt með folatollum í 3 efstu sæti í hvorum flokki (hestar, hryssur). Folaldasýning öllum opin, skrá þarf IS númer, lit, foreldra og ræktanda. Skráningargjald er kr 1500 fyrir félagsmenn Hrossaræktarfélags Spretts en kr 2000 fyrir aðra. Greitt í reiðufé á staðnum. Skráning er öllum opin.

Skráning hjá: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. í síðasta lagi 11.febr. kl 20:00

Uppboð á folatollum. Til styrktar Hestamannafélaginu Spretti við gerð kynbótavalla á svæðinu fyrir væntanlegar kynbótasýningar vorsins. Allt spennandi 1.verðl. stóðhestar.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir