• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Vetrarleikar á morgun

Skrifað þann Febrúar 06 2015
  • Print
  • Netfang
olgerdinFyrstu vetrarleikar Spretts fara fram á morgun, laugardaginn 7.febrúar kl.13:00. Skráning er í reiðhöllinni frá kl 11-12 á morgun laugardag.Stjórn Spretts mun baka vöfflur á meðan á skráningu stendur fyrir félagsmenn. Vöfflurnar verða í boði Spretts.

Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn (10-13 ára)
Unglingar (14-17 ára)
Ungmenni (18-21 árs)
Konur II - minna keppnisvanar
Karlar II - minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (50 ára +)
Konur I - meira keppnisvanar
Karlar I - meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.

Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.
1.sæti gefur 10 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 4 stig
5.sæti gefur 2 stig
1 stig fæst fyrir þá sem taka þátt

Keppni í polla- og barnaflokki mun alltaf fara fram inni í Sprettshöllinni. Fyrsta mótið verður haldið inni í frábæru reiðhöllinni okkar. En staðsetning annarra vetrarleika verður auglýst þegar nær dregur þeim mótum og mun veðrið og færð ráða því vali

Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr. Skráning fer fram á milli 11 og 12 á mótsdag

Styrktaraðili vetrarleika 2015 er Ölgerðin

Mótanefnd vonast til að sjá sem flesta á laugardaginn.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir