• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Forkeppni lokið

Skrifað þann Febrúar 05 2015
  • Print
  • Netfang

vikingGlæsilegri og æsispennandi forkeppni lokið í Víking fjórgangi í Gluggar og Gler deild Spretts. Nú hafa 42 knapar lokið keppni og því ljóst hvaða 7 knapar ríða úrslit núna eftir 30 mínútur. Forkeppnin gekk frábærlega, mikið um glæsihross og góða reiðmennsku. Frábær mæting er í höllina en áætlað er að um 700 manns sitji á pöllunum.

Þeir sem ríða úrslit á eftir eru:

1. Halldóra Baldvinsdóttir / Tenór frá Stóra-Ási: 6,7 - 3 Frakkar
2. Játvarður Jökull Ingvarsson / Röst frá Lækjamóti: 6,6 - Margrétarhof
3-4. Hrafnhildur Jónsdóttir / Kraftur frá Keldudal: 6,23 - Mustad
3-4. Viðar Þór Pálmason / Mön frá Lækjamóti: 6,23 - Margrétarhof
5. Jón Steinar Konráðsson / Veröld frá Grindavík: 6,2 - Kæling
6-7. Gunnhildur Sveinbjarnardóttir / Skjálfti frá Langholti: 6,17 - Barki
6-7. Hrefna Hallgrímsdóttir / Penni frá Sólheimum. 6,17 - Vagnar og Þjónusta

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir