• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Uppskeruhátíð hestamanna

Skrifað þann Janúar 03 2015
  • Print
  • Netfang
GullhamrarUppskeruhátíð hestamanna verður haldin á Gullhömrum í Grafarholti 10. janúar næstkomandi. Gullhamrar er einn glæsilegasti veitinga- og veislustaður á landinu í dag og ætti því enginn að láta sig vanta á þessa frábæru hátíð okkar. Dagskráin verður með sama móti og venjulega. Verðlaunaafhendingin verður á sínum stað, dýrindis þriggja rétta máltíð og að sjálfsögðu dönsum við saman langt fram eftir nóttu eins og okkur hestamönnum er einum lagið.

Viðburðinn er hægt að finna á fésbókarsíðu viðburðarins.

Hinn þjóðþekkti sjónvarpsmaður Gísli Einarsson verður veislustjóri og svo mun hljómsveitin Rokk halda uppi fjörinu en í henni eru þeir:

  • Hreimur Örn - gítar og söngur
  • Pálmi Sigurhjartarson - píanó og söngur
  • Benedikt Brynleifsson - trommur
  • Róbert Þórhallsson - bassi
  • Vignir Snær - gítar og söngur

Þriggja réttar máltíðin verður með glæsilegu móti:

  • Forréttur - Austurlensk sjávarréttasúpa með karrí og kókos
  • Aðalréttur - Lambahryggvöðvi með kartöfluköku, steiktum skógarsveppum og lambasoðsósu
  • Ábætisréttur - Suðrænn kókosdraumur með berjablöndu og crumble.

Ekki láta þig vanta á eina glæsilegustu uppskeruhátíð til þessa!

Fyrstir koma fyrstir fá!

Miðasalan fer fram á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 517-9090

Miða og borðapantanir verða til kl. 18, þriðjudaginn 6. janúar.

Miðar verða afhentir miðvikudaginn 7. janúar í Gullhömrum.

Verð: 9600 kr.

Selt inn á dansleik frá 23.30. Verð 2.500 krónur

Gestir þurfa að senda kvittun á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og þá verður tekið frá borð á þeirra nafni.

Borðaröðun fer fram þegar miðasölu lýkur!

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir