• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Hestadagar settir í Hörpu

Skrifað þann Mars 27 2014
  • Print
  • Netfang
Hestadagar HilmirHestadagar hefjast með formlegum hætti fimmtudaginn 3. apríl kl. 19:00 við Hörpuna. Dagskrá kvöldsins þar verður með eftirfarandi hætti:

· Kl: 19:00 - Fultrúar félaga á höfuðborgarsvæðinu koma
ríðandi að Hörpu með fána sinna félaga og formlega tekið á
móti gestum með fordrykk í anddyri Hörpu. Hestadagar settir
formlega.

· Kl: 20:00 - Hestaat í Hörpu. Hér leiða saman hesta sína Hilmir
Snær og hljómsveitirnar Brother Grass og Hundur í óskilum. Boðið
verður upp á nýstárlegt, tónrænt uppistand í Norðurljósasal
Hörpu. Íslenski hesturinn verður skoðaður frá öllum hliðum og
rifjuð upp rysjótt sambúð hans við ótamin náttúruöfl og
brokkgenga þjóð.

Miðinn á Hestaatið kostar kr. 4.000 á midi.is. LH langar hins vegar
að bjóða hestamönnum betri kjör eða miðann á kr. 3.500 ef 10
manns eða fleiri taka sig saman og panta miða sem hópur. Þá verða
miðakaupinn að fara í gegnum skrifstofu LH, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Tilboðið gildir til þriðjudagsins 1. apríl.

Sprettarar, sköpum stemningu fyrir þessum einstaka viðburði í Hörpunni og skellum okkur í bæinn á Hestadaga?

Hlökkum til að sjá ykkur í Hörpu á fimmtudagskvöldið eftir viku!

Stjórn og starfsfólk LH.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir