• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Opið þrígangsmót í Sprettshöllinni 14.mars

Skrifað þann Mars 05 2014
  • Print
  • Netfang
Hestamannafélagið Sprettur heldur opið þrígangsmót í reiðhöll Spretts föstudaginn 14 mars n.k. Aðalstyrktaraðili mótsins er Blue WaterGlæsilegasta parið í karlatölti Spretts 2014
Mótið hefst kl. 17. Boðið er upp á keppni í fjórum flokkum:
17 ára og yngri
Minna vanir
Meira vanir
Opinn flokkur
Sýna á fegurðartölt, brokk og stökk. Ef 20 eða fleiri skrá í flokk verður boðið upp á B-úrslit.
Vegleg verðlaun, glæsilegasta parið valið og dregin út verðlaun meðal keppenda.

Skráning hefst fimmtudaginn 6.mars og stendur til miðnættis þriðjudaginn 11.mars. og fer eingöngu fram rafrænt  á Sportfeng http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add veljið hestamannafélagið Sprettur og svo viðburðinn Þrígangsmót. 
Ef einhver vandræði koma upp í skráningu sendið póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  Skráningargjald er kr. 3.500 á hest
Seldar verða veitingar á staðnum á vægu verði og trúbador verður á staðnum til að skemmta gestum að móti loknu
Hlökkum til að sjá sem flesta
Mótanefnd Spretts

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir