• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

LH-félagi ársins

Skrifað þann Febrúar 08 2022
  • Print
  • Netfang

sprettur logo net

LH – félagi ársins eru hvatningarverðlaun fyrir sjálfboðaliða og félaga hestamannafélaga sem vinna fórnfúst og óeigingjarnt starf í þágu hestamennskunnar.

 Óskað er eftir að hvert og eitt hestamannafélag tilnefni félaga ársins innan sinna raða og sendi tilnefninguna til LH ásamt rökstuðningi fyrir valinu. Einnig hvetjum við félögin til að verðlauna þann einstakling sem verður fyrir valinu hjá þeim sem félaga ársins.

Við hvetjum Sprettara til þess að senda inn tilnefningar á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 20.feb nk. Spettur mun svo senda tilnefningarnar til LH fyrir 1.mars.

Skipuð hefur verið nefnd sem velur fimm félaga úr innsendum tilnefningum, sem kosið verður um í netkosningu á vef LH um miðjan mars/byrjun apríl.

Í nefndinni sitja:

Berglind Karlsdóttir, framkvæmdastjóri LH

Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir, formaður æskulýðsnefndar

Einar Gíslason, formaður keppnisnefndar
Gréta V. Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í LH

Lilja Björk Reynisdóttir, varamaður í stjórn LH



Þegar úrslit liggja fyrir verður LH-félagi ársins veitt vegleg verðlaun og allir fimm útnefndir fá viðurkenningu.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir