• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Fyrstu vetrarleikar Spretts og Camper Iceland 2022

Skrifað þann Febrúar 08 2022
  • Print
  • Netfang

CamperIceland new whitebkgrd

Fyrstu vetrarleikar Spretts og Camper Iceland 2022
Keppt verður í Samskipahöllinni Sunnudaginn 13.feb.

Keppt verður á hefðbundin hátt vetrarleika, uppá vinstri hönd, hægt tölt og svo fegurðartölt.

Lifandi niðurstöður verða á viðburði vetrarleikanna.
Skráning fer fram í anddyri veislusals Spretts kl:11:00-13:00

Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.
Mótið hefst kl 14:00.

Verðlaunaafhending fer fram í veislusals Spretts að mótinu loknu, boðið verður uppá vöfflur, kaffi og kakó

Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
Börn (10-13 ára)
Unglingar - minna keppnisvanir (14-17 ára)
Unglingar - meira keppnisvanir (14-17 ára)
Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
Ungmenni - meira keppnisvön (18-21 árs)
Konur II - minna keppnisvanar
Karlar II - minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (60 ára +)
Konur I - meira keppnisvanar
Karlar I - meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)


Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka.
Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.
1.sæti gefur 10 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 4 stig
5.sæti gefur 2 stig
1 stig fæst fyrir allla þá sem taka þátt.
Vonumst til að sjá sem flesta

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir