• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Metamót 2021

Skrifað þann Ágúst 27 2021
  • Print
  • Netfang

Sprettur logo

Hið stórskemmtilega Metamót Spretts fer fram á Samskipavellinum 2.-5. september.

Á mótinu verður keppt í A- og B-flokki gæðinga á beinni braut(ekki sýnt fet og stökk). Einnig verður boðið uppá Gæðingatölt.
Boðið verður upp á opinn flokk og áhugamannaflokk.

Einnig verður boðið upp á keppni í tölti T3, 1.flokki og 2.flokki.


Fyrirtækjatöltið verður á sínum stað.


Að sjálfsögðu verða skeiðkappreiðar að venju og keppt verður í 100m fljúgandi ljósaskeiði, 150m skeiði og 250m skeiði.
Aldurstakmark er í keppni á mótinu og miðast þátttökuréttur við ungmennaflokk.

Mótinu verður streymt á Alendis

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng, skráning verður opin til og með 31.ágúst.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir