• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Íþróttamót Spretts 2020 - OPIÐ mót

Skrifað þann Maí 04 2020
  • Print
  • Netfang

Mótanefnd Spretts hefur ákveðið að Íþróttamótið verði opið öllum keppendum.Sprettur logo

Fjöldatakmarkanir verða í hverri grein, en hámarksfjöldi keppenda er 20.
Við minnum keppendur og áhorfendur á að sýna ábyrgð og fylgja öllum reglum almannavarna.

Íþróttamót Spretts verður haldið á Samskipavellinum skv. dagskrá dagana 15. – 17. maí.

Til að mótið geti farið fram verðum við að treysta á að keppendur og áhorfendur vinni með okkur að fylgja öllum reglum almannavarna sem munu gilda á þessum tíma.

Mikilvægt er að passa uppá 2 metra regluna hvort sem er keppendur eða áhorfendur.


Skráning á mótið mun standa yfir frá 1. maí og til miðnættis sunnudaginn 10. maí.

Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.


Boðið verður uppá eftirfarandi flokka og keppnisgreinar:

Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Tölt T3 – Tölt T7

Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4

Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2

2. flokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2

1. flokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2

Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Fimmgangur F1 – Tölt T1 – Tölt T2 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2

Skráningagjöld eru eftirfarandi:

Barnaflokkur og unglingaflokkur: 4500 kr.

Ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur: 5500 kr.

Fyrirspurnir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir