• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Folaldasýning Sörla 2020

Skrifað þann Febrúar 21 2020
  • Print
  • Netfang

Lýra

Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 29.febrúar á Sörlastöðum. Vegleg verðlaun eru í boði og folatollauppboð verður á þekktum stóðhestum, m.a verður boðinn upp tollur undir glæsilega klárhestinn Hnokka frá Eylandi sem hefur hlotið 8,50 fyrir hæfileika 6 vetra gamall og sannað sig á keppnisbrautinni.

Folald sýningarinnar hlýtur hinn eftirsótta Þjórsárbakkabikar.
Dómarar eru Jón Vilmundarson og Gísli Guðjónsson.

Skráningar skal senda á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:

Nafn folalds, uppruni og IS númer
Nafn móður og föður folalds
Litur
Eigandi og ræktandi folalds
Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 640269-6509. Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið topphross(hja)gmail.com með nafn folalds sem skýringu.

Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 27.febrúar.

Um að gera að sækja folöldin og koma á þessa skemmtilegu sýningu.

Nánari upplýsingar koma síðar og við munum kynna fleiri uppboðstolla.

Kynbótanefndin.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir