• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Ragga Sam. tilnefnd til reiðkennara ársins hjá FEIF.

Skrifað þann Janúar 06 2020
  • Print
  • Netfang

Ragga Sam og TG

FEIF hefur gert það opinbert hvaða þjálfarar/reiðkennarar eru tilnefndir í ár

Um er að ræða sex aðila frá jafn mörgum löndum sem tilnefndir eru í ár.

Fulltrúi Íslands er Ragnheiður Samúelsdóttir, reiðkennari og tamninga kona í Spretti.

Ragga Sam, eins og hún er jafnan kölluð, er útskrifaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Hún kemur víða við í reiðkennslu sinni og kennir jafnt minna vönum sem meira vönum. Fyrir nokkrum árum fór hún af stað með „töltgrúppu“ sem hestamenn kannast við og hefur í kjölfarið notið mikilla vinsælda víða á landinu.

Aðrir tilnefndir eru; Julie Christiansen, Suzan Beuk, Barla Isenbugel, Laura Benson og Jenni Kurki.

Atkvæðagreiðsla er hafin á netinu og er öllum opin, hægt er að kjósa til 13.janúar. Hver ber sigur úr býtum verður tilkynnt á FEIF ráðstefnunni sem fram fer hér á landi í febrúar.

Hægt er að lesa meira um þessa frábæru reiðkennara og kjósa með því að smella hér https://www.facebook.com/FEIF.org/app/126231547426086/?app_data=%7B%7D

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir