• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Ísmót Spretts

Skrifað þann Janúar 18 2014
  • Print
  • Netfang
Heimahagi logoSameinumst Sprettarar og höldum ísmót í boði Meistaradeildarliðs okkar Spónn.is/Heimahagi. Mótið verður á þriðjudaginn næstkomandi, þann 21. janúar klukkan 18:00 niðri á nýja keppnisvellinum okkar. Keppt verður á beinni braut.

Flokkarnir sem eru í boði eru:
  • 17 ára og yngri
  • Áhugamannaflokkur
  • Opinn flokkur

Mótið verður með einföldu og skemmtilegu sniði, vegleg verðlaun verða í boði. Hlökkum til að sjá sem flesta skemmta sér saman. Engin skráning fyrirfram, bara að mæta klukkan 18:00 niður á nýja keppnisvöll Spretts. Skráningargjald er 500 krónur og greitt við vallarendann. Skráningargjöld renna til tækjakaupa félagsins, velunnarar Spretts er frjálst að greiða hærri skráningargjöld.

sponn.isSjáumst hress á þriðjudaginn og höfum gaman saman á nýju glæsilegu svæði Spretts.

Ps. Loforð gefin um að engin mun falla í gegnum ísinn :-)





Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir