• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Unglingalandsmót UMFÍ 2019

Skrifað þann Júlí 11 2019
  • Print
  • Netfang

Unglingalandsmót UMFÍ 2019 fer fram um verslunarmannahelgina á Höfn í Hornafirði í samstarfi við Ungmennasambandið Úlfljót (USÚ) og Sveitarfélagið Hornafjörð. Öll ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára geta skráð sig til leiks. Þar reyna þátttakendur með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Ekki er skilyrði að vera skráð/ur í ungmenna- eða íþróttafélag til að koma á Unglingalandsmót UMFÍ.

Eins og á öllum Unglingalandsmótum UMFÍ er keppt í fjölmörgum skemmtilegum greinum alla mótsdagana. Á kvöldin verða tónleikar með m.a. Bríeti, Daða Frey, Úlfi Úlfi, Sölku Sól, Unu Stef og GDRN.

Nánari upplýsingar um keppnisgreinar og skráning á vefslóðinni: www.ulm.

Unglingalandsmót UMFÍ á Höfn í Hornafirði á Facebook:
https://www.facebook.com/events/634810396992786/

 

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir