• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Æskan og hesturinn í Víðidal 4. maí 2019

Skrifað þann Apríl 23 2019
  • Print
  • Netfang
Æskan og hesturinn 2019 vefurHin árlega sýning Æskan og hesturinn verður haldin laugardaginn 4. maí næstkomandi í TM-Reiðhöllinni í Víðidal. Þar koma fram efnilegustu hestamenn landsins og sýna afrakstur vetrarstarfsins og er óhætt að segja að sýningin sé hápunktur vetrarstarfsins hjá hinum ungu knöpum.

Hópar ungra hestamanna frá öllum hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu; Fáki, Herði, Mána, Spretti og Sörla sýna fjölbreytt atriði sem þeir hafa æft í hverju félagi fyrir sig. Sýningarnar verða tvær; kl. 13:00 og 16:00.


Auk hinna fjölmörgu glæsilegu atriða sem börnin sýna mun Friðrik Dór koma fram og flytja vel valin lög.

Frítt er inn á sýninguna á meðan húsrúm leyfir.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir