• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Dymbilvikusýning Spretts 2019

Skrifað þann Apríl 02 2019
  • Print
  • Netfang

Nú styttist óðum í hina árlegu Dymbilvikusýningu Spretts sem fram fer í Samskipahöllinni
miðvikudaginn 17. Apríl, kvöldið fyrir skírdag að venju. DYMBILVIKU 2019

Ræktunarhross skipa stóran sess á sýningunni líkt og undanfarin ár, en boðið verður upp á sýningar ræktunarbúa, úrvals hryssur og stóðhesta, ræktunarkeppni hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Heiðraðir verða íþróttarknapar Spretts 2018 ásamt Landsmóts og íslandsmeistarasigurvegurum, ungir Sprettarar koma fram ásamt mörgu fleira spennandi.

Undirbúningur er í fullum gangi þessa dagana og enn geta ræktendur, hesteigendur og knapar haft samband vilji þeir leggja sýningunni lið með skemmtilegum og flottum atriðum.

Hægt er að hafa samband í eftirfarandi símanúmer eða á tölvupósti.

896 9740 Rúnar / This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

893 3600 Maggi / This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

862 5945 Lárus Sindri / This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.



Hér er slóð á viðburðinn 
https://www.facebook.com/events/651506658632083/

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir