• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Skemmtimót Spretts

Skrifað þann Janúar 18 2019
  • Print
  • Netfang
Skemmtimót ársins verður haldið af ungu kynslóðinni í Spretti laugardaginn 26. janúar.

Mótið er haldið af nemendum námskeiðsins Hestamennska sem er í umsjón Sigrúnar Sigurðardóttur og Þórdísar Önnu Gylfadóttur.
Mótið verður haldið í Samskipahöllinni og hefst klukkan 11:00.

Boðið verður uppá tvær keppnisgreinar, T7 og boðhlaup.
Í T7 verður keppt í eftirfarandi flokkum:
- 9 ára og yngri
- 10 ára og eldri, minna vanir
- 10 ára og eldri, meira vanir

Mótið er fyrir Sprettskrakka á aldrinum 7 – 15 ára.

Skráning er opin til miðnættis miðvikudaginn 23. janúar og senda skal upplýsingar um knapa, hest og keppnisgrein á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 

Skráningargjald er 500 kr. sem greiðist á staðnum

Vegleg verðlaun í boði!
Allir Sprettskrakkar að fjölmenna og hafa gaman saman.


Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir