• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Sölusýning Félags Hrossabænda

Skrifað þann Október 02 2018
  • Print
  • Netfang
Þann 26. Október kl 17:00 efnir Félag Hrossabænda til sölusýningar í Samskipahöllinni. Seinasta sölusýning sem haldin var í Spretti mættu u.þ.b.100 hross, 500 manns sátu í stúkunni og mörg þúsund fylgdust með í beinni útsendingu. Markmiðið er að búa til markaðsglugga og auðvelda fólki að koma hestum sínum á framfæri.

Bein útsending verður frá viðburðinum sem verður dreift víða á facebook og öðrum félagsmiðlum og mun efnið lifa þar inni þannig fólk getur nálgast upptökuna af sínum hesti að lokinni sýningu.

Verðflokkarnir verða
A - 0-750.000kr
B - 750.001-1.500.000kr
C - 1.500.001-3.000.000kr
D - 3.000.001kr+

Skráningargjald er 5000kr en meðlimir í félagi hrossabænda borga 3000 kr fyrir skráninguna.

Skráningar skulu sendast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Þar sem fram þarf að koma:
Stjörnumerkt (*) atriði verða að berast:

*IS númer
*Nafn knapa
*Nafn/sími/tölvupóstur umsjónarmanns
*Verðflokkur
Lýsing á hestinum max 50 orð
Vefsvæði (.is .net .com facebook instagram)
Logo

Skráningu lýkur á miðnætti þann 23. Október.

Takið daginn frá því sýningar af þessu tagi njóta alltaf mikilla vinsælda.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir