• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Skráning á Metamót

Skrifað þann September 02 2018
  • Print
  • Netfang

Skráning á metamót Spretts 2018 er í fullum gangi. Skráningu líkur 4.september kl 23:59. Áætlað er að keppni hefjist á föstudag um kl 12:00 með blandaðri forkeppni í B-ljosaskeidflokki. Metamótið hefur í gengnum tíðina verið mót nýjunga og verður sú nýjung á mótinu í ár að keppendur hafa þess kost að kaupa VIP sæti aftast í rásröð, en 15 sæti eru í boði í A-og B-flokki. Til að skrá í þessi sæti skal velja í Sportfeng Metamót 2018 VIP.

Á Laugardaginn verður fjölbreytt dagskrá í Samskipahöllinni. Þar verður perlað með Krafti á milli 11-15. Útdráttur verður í Equisanadeildinni á laugardagskvöldinu, þá verða einnig úrslit í tölti og  uppboð á úrslitasætum. Bein útsending verður frá öllu mótinu.

Við minnum á að aldurstakmark er til keppni á mótinu og miðast þátttökuréttur við ungmennaflokk. Ef vandamál koma upp við skráningu má hafa samband í s. 869-8425. Ekki verður tekið við skráningum eftir auglýstan skráningartíma.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir