• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Tvítugsafmæli Þrists frá Feti

Skrifað þann Júní 12 2018
  • Print
  • Netfang
Miðvikudaginn 13. júní verður heiðursverðlaunahesturinn Þristur frá Feti tvítugur. Af því tilefni býður hann til afmælisveislu í hesthúsinu að Hæðarenda 1-3 í Spretti í Kópavogi frá kl. 18-20:30.

Allir vinir og velunnarar Þrists eru velkomnir og mun kappinn taka sér hlé frá störfum við að sinna hryssum á húsi og heilsa upp á gesti þess í stað. Um helgina fer hann svo í hólf á Holtabrún í Holta- og Landsveit og geta afmælisgestir tryggt sér 20% afmælisafslátt af tolli hafi þeir hug á að koma með hryssu í sumar.

Allir velkomnir!

Ljósmynd: Freyja Þorvaldar

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir