• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Skráning hafin á Mar Wear Töltið í Blue Lagoon mótaröð Spretts

Skrifað þann Apríl 30 2018
  • Print
  • Netfang
Skráning hafin á þriðja og síðasta mótið í Blue Lagoon mótaröð Spretts, Mar Wear Tölt.
Mótið verður haldið sunnudaginn 6. maí í Samskipahöllinni í Spretti og verða eftirfarandi flokkar í boði:

Pollaflokkur (6-9 ára sem ríða sjálfir)
Barnaflokkur minna vanir (10-13 ára)
Barnaflokkur meira vanir (10-13 ára)
Unglingaflokkur (14-17 ára)
Ungmennaflokkur (18-21 árs)

Fimm skráningar þarf í hvern flokk svo að boðið sé upp á hann. Mótanefndin áskilur sér rétt á að sameina flokka ef ekki næst nægur fjöldi í einhverja flokka.

Keppendur sýna:
Pollaflokkur - hægt tölt og frjáls hraði, ekki snúið við.
Í pollaflokki verður sýnd einkunn eftir hvert atriði fyrir hvern knapa, til upplýsingar, en ekki raðað í sæti. Dómarar velja glæsilegasta parið í pollum.

Barnaflokkur minna vön - T7 (hægt tölt, snúið við, frjáls hraði)
Barnaflokkur meira vön - T3 (hægt tölt, snúið við, hraðabreytingar og greitt tölt)
Unglingaflokkur - T3
Ungmennaflokkur - T3

Skráningin fer fram í gengum Sportfeng og eru skráningargjöld eftirfarandi:
2000 kr. fyrir barna- unglinga- og ungmennflokk
1000 kr. fyrir pollaflokk

Skráning er opin frá 30. apríl til miðnættis 4. maí.

Mikilvægt er að senda kvittun fyrir greiðslu á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir