• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Dymbilvikusýning Spretts 28.mars nk.

Skrifað þann Mars 26 2018
  • Print
  • Netfang
Dymbilvikusýning 2 2018
Nú styttist óðum í hina árlegu Dymbilvikusýningu Spretts sem fram fer í Samskipahöllinni miðvikudaginn 28. mars kvöldið fyrir skírdag að venju.
Ræktunarhross skipa stóran sess á sýningunni líkt og undanfarin ár, en boðið verður upp á sýningar ræktunarbúa, úrvals hryssur og stóðhesta, ræktunarkeppni hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Íþróttaknapar Spretts verða heiðraðir, ungir Sprettarar koma fram. Töltgrúppan mætir með nýtt spennandi atriði ásamt mörgum öðrum spennandi atriðium.

Húsið opnar kl 18. Sýningin byrjar kl 20
"Happy hour" á barnum milli 18 og 20
Við minnum á hið vinsæla hlaðborð sem verður að sjálfsögðu á sínum stað.
Þannig að það er um að gera að mæta fyrr, njóta veitinga og horfa svo á frábæra sýningu.

Aðgangseyrir 1500kr fyrir 12 ára og eldri.

https://www.facebook.com/events/558597191179213/

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir