• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Fjórðungsmót Vesturlands 2017

Skrifað þann Júní 28 2017
  • Print
  • Netfang
Fjórðungsmót Vesturlands verður haldið í Borgarnesi 28. júní til 2. júní 2017. Í gæðingakeppni eiga keppnisrétt félagar í hestamannafélögum á Vesturlandi, á Vestfjörðum, í Húnavatnssýslum og í Skagafirði.

Á mótinu verður einnig keppt í þessum greinum og er þar um opna keppni að ræða þ.e. allir geta tekið þar þátt:
1. Tölt opinn flokkur
2. Tölt 17 ára og yngri
3. 100 metra fljótandi skeið
4. 150 metra skeið
5. 250 metra skeið

Skráningargjald í tölt er 7.000 kr. á hvern hest en 3.500 kr. á hvern hest í skeiðgreinum

Skráning í þessar greinar hefst sunnudaginn 11. júní og lýkur á miðnætti sunnudaginn 18. júní og fer hún fram í gegnum SportFeng.

SportFengsnúmer mótsins er IS2017LM0132.

Skráningargjöld skal greiða á reikning:
  kt. 450405-2050
  banki: 0326-26-002265

Kvittun fyrir greiðslu skráningargjalda skal send á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Það er mjög áríðandi að kvittun sé send á þetta netfang.
Í lok skráningarferlisins koma fram upplýsingar um greiðslu skráningargjalda.

Peningaverðlaun verða fyrir fyrsta sæti í tölti opnum flokki og 100m fljótandi skeiði.

Fylgstu með Fjórðungsmóti Vesturlands 2017 á https://www.oz.com/lh

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir