• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Umhverfis og hreinsunardagur 18. apríl

Skrifað þann Apríl 12 2017
  • Print
  • Netfang
Umhverfis og hreinsunardagur verður haldinn þriðjudaginn 18. apríl n.k.

Tiltektardagurinn er mikilvægur dagur á hverju vori fyrir hverfið okkar þar sem margar hendur koma saman og taka til eftir veturinn.

Á þessum degi er lögð áhersla á að taka til utandyra, kringum húsin okkar og í umhverfinu en ekki inni í húsunum.

Áform eru um að loka reiðvegum á meðan hreinsun stendur yfir í c.a 2 tíma.

Til dreifingar verða svartir ruslapokar frá bæjarfélögunum á Andvarasvæðinu, Heimsenda og á nýja svæðinu, ásamt áhöldum, hrífum og ruslatínum. Gámar (2-3) verða staðsettir á Kjóavöllum og verða umsjónarmenn þar til taks og taka á móti rusli.

ATH. ekki verður tekið á móti rusli úr húsunum eins og t.d. heyi, almennu sorpi, byggingarúrgangi o.s.frv.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir