• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Dymbilvikusýning Spretts 2017

Skrifað þann Apríl 10 2017
  • Print
  • Netfang
Nú styttist óðum í hina árlegu Dymbilvikusýningu Spretts sem fram fer í Samskipahöllinni miðvikudaginn 12. apríl næstkomandi, kvöldið fyrir skírdag að venju. Ræktunarhross skipa stóran sess á sýningunni líkt og undanfarin ár, en boðið verður upp á sýningar ræktunarbúa, úrvals hryssur og stóðhesta, ræktunarkeppni hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu, íþróttamaður Spretts verður heiðraður, ungir Sprettarar koma fram og keppt verður í skeiði í gegnum höllina. Töltgrúppan mætir með nýtt spennandi atriði, þær voru 62 í fyrra, hvað verða þær margar í ár? 

Undirbúningur er í fullum gangi þessa dagana og enn geta ræktendur, hesteigendur og knapar haft samband vilji þeira leggja sýningunni lið með skemmtilegum og flottum atriðum.
Hægt er að hafa samband í eftirfarandi símanúmer: 896 9740 Rúnar eða 893 3600 Maggi

Gríðarlegur áhugi er fyrir skeiðkeppni í gegnum höllina, heyrst hefur að menn ætli sér að setja nýjan mettíma í gegnum höllina. Hvetjum alla skeiðknapa að boða komu sína með símtali eða sms-i í síma 896 9740 Rúnar svo hægt kynna knapa og hesta til leiks.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir