• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Fimmgangur fyrir flotta krakka!

Skrifað þann Mars 16 2017
  • Print
  • Netfang
Minnum á að skráning á annað mót Blue Lagoon mótaraðarinnar er í fullum gangi, en keppt verður í fimmgangi í þetta skiptið í Samskipahöllinni í Kópavogi. Mótið verður haldið sunnudaginn 19. mars nk. og er í boði Heimahaga.
Eftirfarandi flokkar eru í boði:

Barnaflokkur (10-13 ára)
Unglingaflokkur (14-17 ára)
Ungmennaflokkur (18-21 árs)

Í hverjum flokki er hámarksfjöldi skráninga 30 og hverjum knapa er einungis heimilt að skrá einn hest til keppni.

Riðið verður hefðbundið fimmgangsprógramm F2 í barna-, unglinga- og ungmennaflokki.

Mótið er opið og fer skráning fram í gengum Sportfeng og skráningargjaldið er kr. 2.000.

Skráningin er opin til miðnættis fimmtudaginn 16. mars! Mikilvægt er að senda kvittun fyrir greiðslu á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Lágmark fimm skráningar í flokk, að öðrum kosti verða flokkar sameinaðir.

Frábært tækifæri fyrir unga knapa til að spreyta sig á fimmgangskeppni. Mjög vegleg verðlaun í boði í öllum flokkum.

Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni á sunnudaginn með leikgleðina í farteskinu! Allir velkomnir!

Dagskrá og ráslistar munu birtast á netinu er nær dregur helgi.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir