• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Jakob Svavar Sigurðsson með sýnikennslu 14. Janúar

Skrifað þann Janúar 07 2017
  • Print
  • Netfang
Jakob Svavar Sigurðsson verður með sýnikennslu í Samskipahöllinni í Spretti þann 14. janúar. Jakob þarf vart að kynna en hann hefur verið afar sigursæll á keppnisbrautinni undanfari ár og er hann meðal annars gæðinknapi 2016 sem og Landsmóts-sigurvegari í B-flokki 2016 en hann hefur vakið athygli fyrir vel þjálfuð hross og fallega reiðmennsku. Í sýnikennslunni mun Jakob fjalla alment um uppyggingu og þjálfun hesta. 
Jakob mun meðal annars mæta með glæsihryssuna Gloríu frá Skúfslæk.

Ekki missa af þessari skemmtilegu sýnikennslu sem hefst klukkan 13:00 og tekur u.þ.b. tvær klukkustundir.

Miðaverð er 1500 kr. en frítt er fyrir 10 ára og yngri!

Kveðja Fræðslunefnd Spretts

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir