• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

2 pláss laus á gangtegundanámskeið fyrir börn og unglinga

Skrifað þann Júní 18 2015
  • Print
  • Netfang
Þórdís og Gola Hofsstöðum
Vegna forfalla eru 2 laus pláss á gangtegundanámskeið fyrir börn og unglinga sem hefst nk mánudag. 22.júní. Skráning verður opin til og með 20.júní.

Hestamannafélagið Sprettur mun í sumar bjóða upp á Gangtegundanámskeið fyrir börn. 

Námskeiðið er ætlað börnum og unglingum sem eru orðin vel hestfær og ríða út sjálf/stjórna sínum hestum sjálf. 

Börnin koma sjálf með sína eigin hesta og sinn búnað. Lögð verður áhersla á að ríða allar gangtegundirnar (nema skeið) og gera gangskiptingar á hringvelli. 

Auk þess verður farið í lengri og styttri reiðtúra, farið yfir ásetu og stjórnun, jafnvægisæfingar og fleira. 
Einungis fimm börn í hverjum hóp.
Mikið aðhald og kennsla. Reiðkennari er Þórdís Anna Gylfadóttir. 

Kennt verður frá mánudegi til föstudags kl.9-12:30. 
Námskeiðið fer fram á Dreyravöllum 1 og þar verða hestarnir staðsettir á meðan námskeiðinu stendur. 
Námskeið 1: 22.júní til 26.júní 
Námskeið 2: 29.júní til 3.júlí 
Skráning fer fram í gegnum http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add
Skráning er hafin og verður opin til og með 20.júní.
Hesthúsapláss, hey og spænir er innifalið í verði. 
Krakkarnir koma sjálf með nesti. 
Verð kr.23.000. 
Enn frekari upplýsingar er hægt að nálgast í síma: 868-7432 (Þórdís) eða á netfanginuThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald