• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Einkatímar með Magga Lár

Skrifað þann Nóvember 15 2021
  • Print
  • Netfang

Magnús Lárusson

Langar þig í reiðkennslu hjá kennara sem segir þér á skýran, hispurslausan, og einlægan hátt hvernig þú getur bætt árangurinn við
þjálfun hestsins þíns?
Maggi Lár er einstaklega laginn við að bæta ásetu og stjórnun hjá knöpum þannig að niðurstaðan verði mikil bæting á gangtegundum og höfuðburði.
Magnús Lárusson hefur viðamikinn bakgrunn í fimiæfingum, á langan reiðkennara- og keppnisferil að baki auk þess að vera með
dómararéttindi.

Hann getur því hjálpað þér með flest það sem þig langar til að fá hjálp við. Prófaðu bara!

Hver einkatími er 40mín.

Tímar í boði á milli kl.15:20 til 22:20.

Kennt verður í Samskipahöll í hólfi 3.

Kennt verður annan hvern fimmtudag og hefst kennsla fimmtudaginn 27.janúar. 6 skipti samtals.

Verð fyrir fullorðna er 64.000kr.

Skráning fer fram á www.sportfengur.com

 

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald