• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Vinna við hendi og einkatímar, skráning opin

Skrifað þann Desember 15 2020
  • Print
  • Netfang

Hrafnhildur Helga

Námskeið í vinnu við hendi hefst 21.des 2020, kennari verður Hrafnhildur Helga Guðmundsd.

Bæði verður boðið uppá kennslu grunnhóp og framhaldshóp. Þeir sem ekki hafa farið á vinnu við hendi námskeið hjá Hrafnhildi áður skrá sig í grunnhóp, þeir sem hafa áður farið skrá sig í framhaldshóp.

Farið verður í hvernig hægt er að notast við vinnu við hendi til að hjálpa hestinum að skilja grunnábendingar og að ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu og líkamlegu jafnvægi. Grundvöllur árangurs er að hesturinn sé sáttur og skilji ábendingar knapans, hvort sem það er frá jörðu eða á baki. Einnig verður farið í grunnatriði í hringteymingum og hvernig hægt er að nota það sem viðbót við fjölbreytta þjálfun til að byggja upp réttu vöðvana í hestinum.
Frábært að byrja veturinn á vinnu í hendi þegar hrossin eru að komast af stað í þjálfun. Hver og einn kemur með eigin hest og búnað.

Verð fyrir hvern þátttakenda er 12.500kr. Kennt verður á mánudögum frá kl 18:00 í Samskipahöllinni, 4 skipti

Einnig verða 40.mín einkatímar í boði hjá Hrafnhildi Helgu. Verð fyrir hvern þátttakenda er 30.000kr. Kennsla hefst 21. des. 2020. Einkatímarnir einstaklingsmiðaðir út frá hverjum knapa og hesti.

Kennt verður á mánudögum frá kl 17:15 í Samskipahöllinni, 4 skipti

Skráning er opin í gegnum Sportfeng.

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald