• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Töltdömur Spretts byrja 5.feb.nk

Skrifað þann Janúar 29 2020
  • Print
  • Netfang

töltdömur Spretts

Nýtt námskeið hjá Spretti fyrir dömur á öllum aldri.

Námskeiðið hefst 5.feb.

Kennt verður á miðvikudögum í Samskipahöllinni frá kl 19:00-21:00.

Hópnum verður skipt í tvennt og þjálfað vikulega. Í byrjun verður farið yfir stjórnun og ásetu, reiðleiðir rifjaðar upp og svo í framhaldinu verður byrjað að æfa skemmtilega munsturreið. 

Fyrsta stóra samæfingin verður 26.feb. og svo verður aftur þjálfað í tvennu lagi til næstu samæfingar.

Skemmtilegt námskeið fyrir allar konur í Spretti. 

Stefnt er á að hópurinn komi fram á sýningu fyrir hönd Spretts.

Kennari verður Ragnheiður Þorvaldsdóttir.

Verð fyrir hverja konu er 30.000kr

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og er opin til og með 3.feb

 

Fræðslunefnd Spretts

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald