• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Vinna við hendi og hringteymingar, síðasti skráningardagur.

Skrifað þann Nóvember 24 2019
  • Print
  • Netfang

Vinna í hendi

Síðasti skráningardagur á þetta frábæra námskeið er mánudagurinn 25.nóv.

Námskeið í vinnu við hendi hefst 27.nóv, bæði verður boðið uppá kennslu fyrir minna. Þeir sem ekki hafa farið á vinnu við hendi námskeið hjá Hrafnhildi áður skrá sig í minna vana, þeir sem hafa áður farið skrá sig í meira vana.

 

Farið verður í hvernig hægt er að notast við vinnu við hendi til að hjálpa hestinum að skilja grunnábendingar og að ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu og líkamlegu jafnvægi. Grundvöllur árangurs er að hesturinn sé sáttur og skilji ábendingar knapans, hvort sem það er frá jörðu eða á baki. Einnig verður farið í grunnatriði í hringteymingum og hvernig hægt er að nota það sem viðbót við fjölbreytta þjálfun til að byggja upp réttu vöðvana í hestinum.
Frábært að byrja veturinn á vinnu í hendi þegar hrossin eru að komast af stað í þjálfun. Hver og einn kemur með eigin hest og búnað.

Verð fyrir hvern þátttakenda er 11.000kr. Kennt verður á miðvikudögum 4 skipti.

Skráning er opin í gegnum Sportfeng.

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald