• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Helgarnámskeið hjá Antoni Páli 4.-5.maí 2019

Skrifað þann Apríl 18 2019
  • Print
  • Netfang
Anton og Straumur
Helgina 4.-5.maí  mun Sprettur halda námskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni. Námskeiðið fram í Húsasmiðjuhöllinni.

Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.

Kennslan fer fram í 50 mín einkatímum báða dagana. Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.

8 pláss í boði.
Verð er 38.500kr.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og er opin til 29.apríl

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald