• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Helgarnámskeið með Antoni Páli Níelssyni 23. og 24.feb. skráning opin

Skrifað þann Febrúar 13 2019
  • Print
  • Netfang
Anton Páll
Helgina 23-24. febrúar mun Sprettur halda námskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni. Laugardaginn 23.febrúar fyrir hádegi fer kennsla fram í Samskipahöllinni – bil 3. Eftir hádegi á laugardegi og sunnudaginn 24.febrúar fer reiðkennsla fram í Húsasmiðjuhöllinni.

Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.
Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.

Kennslan fer fram í 50 mín einkatímum báða dagana. Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.

8 pláss í boði.
Verð er 38.500kr.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og er opin til 18.febrúar

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald