• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Frístundastyrkir

Skrifað þann Desember 30 2018
  • Print
  • Netfang
Sprettur logo
Nú hefur hestamannafélagið Sprettur tengst frístundastyrkjakerfi bæjarfélganna. Með þessari tengingu geta foreldarar nýtt sér frístundastyrki sem börn á aldrinum 6 til 18 ára eiga rétt á frá sínu bæjarfélagi til að sækja ýmiskonar námskeið. Börn með lögheimili í Kópavogi, Garðabæ, Reykjavík, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Árborg geta nýtt styrki sína hjá Spretti.
Þeir sem vilja nýta þessa styrki skrá börnin sín á námskeið sem eru auglýst á vegum Spretts fyrir börn, unglinga og ungmenni. Forráðamaður á að ganga frá skráningu á vef umsk.felog.is og skrá sig inn í gegnum island.is til að geta ráðstafað styrk. Einnig verður hægt að skrá á námskeið í gegnum Sportfeng eins og við flest þekkjum ef fólk nýtir styrkina td í aðrar tómstundir.
Ef eh spurningar vakna varðandi þá vinsamlega sendið póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Fræðslunefnd Spretts

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald