• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Einkatímar hjá Ísólfi Líndal

Skrifað þann Desember 13 2018
  • Print
  • Netfang
sólfur Líndal
45.mín einkatímar hjá Ísólfi Líndal.
Kennt á föstudögum frá kl 9-16.
Kennt verður annanhvern föstudag. 8.feb, 22. feb, 8.mars og 22.mars.
Verð fyrir hvern þátttakenda er 50.000kr
Skráning er opin í gegnum https://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

Reiðkennarinn Ísólfur Líndal býr ásamt fjölskyldu sinni að Lækjamóti II í Húnaþingi vestra þar sem þau hafa byggt upp fyrirtækið Sindrastaði og stunda hrossarækt, tamningar, þjálfun, ferðaþjónustu og reiðkennslu innlendis sem erlendis.

Ísólfur á velgengni að fagna í reiðkennslu og hestaíþróttum. Hann hlaut m.a reiðkennsluverðlaun Háskólans á Hólum 2005 og starfaði þar sem reiðkennari um tíma. Árið 2013 var Ísólfur kjörinn Gæðingaknapi ársins hjá LH og hefur um áraraðir verið í toppbaráttu og í verðlaunasætum í Meistaradeildum, Íslandsmótum, Fjórðungsmótum, Landsmótum og öðrum stórmótum.

Ísólfur leggur mikla áherslu á leiðir til jákvæðra og markvissra samskipta við hestinn í kennslu sinni og gaf 2015 út kennslubókina,
Með hestum-Fótastjórnun.

Fræðslunefnd Spretts

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald