• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Helgarnámskeið með Antoni 28. og 29.apríl 2018.

Skrifað þann Apríl 11 2018
  • Print
  • Netfang
Anton Páll
Laugardaginn 28.apríl og sunnudaginn 29.apríl 2018 mun Sprettur halda helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni
Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum. Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross frá Syðra-Holti í Svarfaðardal.
Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni. Hann er án efa einn af allra bestu reiðkennurum landsins.
Kennslan fer fram í Hattarvallahöll/Húsasmiðjuhöll.
Kennslan fer fram í einkatímum báða dagana.
Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.

Tveir valmöguleikar á kennslu eru í boði:
2x25mín einkatími - laugardag og sunnudag
eða 1x50mín einkatími – laugardag og sunnudag.
Einungis eru í boði 8 pláss.
Verð kr.32.500 kr. pr. þátttakenda.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.

Fræðslunefnd Spretts

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald