• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Vinna í hendi og einkatímar hjá Hrafnhildi Helgu

Skrifað þann Apríl 05 2018
  • Print
  • Netfang
Hrafnhildur Helga
10.apríl nk hefjast tvenn ný námskeið hjá Hrafnhildi Helgu, annars vegar hefst námskeið í vinnu í hendi og hringteymingum og hinsvegar verða 30.mín einkatímar hjá henni. Kennt verður einu sinni í viku 4 skipti.

Vinna í hendi:
Farið verður í hvernig hægt er að notast við vinnu við hendi til að hjálpa hestinum að skilja grunnábendingar og að ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu og líkamlegu jafnvægi. Grundvöllur árangurs er að hesturinn sé sáttur og skilji ábendingar knapans, hvort sem það er frá jörðu eða á baki. Einnig verður farið í grunnatriði í hringteymingum og hvernig hægt er að nota það sem viðbót við fjölbreytta þjálfun til að byggja upp réttu vöðvana í hestinum.

Einkatímarnir henta bæði meira og minna vönum knöpum þar sem tímarnir eru einstaklingsmiðaðir og farið verður í það sem knapi og/eða hestur þurfa og vilja, hvort sem það er við gangsetningu eða undirbúning fyrir keppni.

Kennt verður í Samskipahöllinni.
Verð fyrir Vinnu í hendi 11.000kr
Verð fyrir einkatíma 21.000kr

Skráning er opin í gegnum Sportfeng.

Fræðslunefnd Spretts

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald