• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Keppnisnámskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni vorið 2018.

Skrifað þann Mars 23 2018
  • Print
  • Netfang
Hekla
Keppnisnámskeið fyrir börn unglinga og ungmenni hefst 3. apríl.
Kennt verður á þriðjudögum í apríl inni í Húsasmiðjuhöll og verða 3 saman hóp þar.
Í maí færum við okkur út á keppnisvellina og þá verður kennt á þriðjudögum og miðvikudögum.
Kennari á námskeiðinu verður Hekla Katharina Kristinsdóttir og mun hún jafnframt vera til staðar fyrir keppendur á íþrótta og gæðingamótum félagsins.

Verð fyrir hvern þátttakanda er 35.000.
Skráning fer fram í gengum Sportfeng.

Hekla Katharína Kristinsdóttir er starfandi reiðkennari og þjálfari. Hún rekur tamningastöð ásamt eiginmanni sínum í Árbæjarhjáleigu 2.
Hekla útskrifaðist sem reiðkennari frá Hólaskóla árið 2012 með hæstan samanlagðan árangur í reiðkennslu og reiðmennsku. Strax í framhaldinu kenndi hún einn vetur á Hólum.
Hekla var mjög atkvæðamikil í barna-, unglinga- og ungmennaflokki á sínum tíma og á þar landsmótssigra sem og marga íslandsmeistaratitla. Einnig varð hún heimsmeistari ungmenna í fjórgangi árið 2011.
Í fullorðinsflokkum hefur hún orðið samanlagður íslandsmeistari í fjórgangsgreinum og verið í úrslitum í B-flokki á landsmóti ásamt mjög góðum árangri á öðrum stórum mótum. Einnig hefur hún sýnt mörg kynbótahross í góða dóma.
Hekla hefur mikla reynslu af keppni og þjálfun hrossa. Einnig hefur hún mikla ástríðu fyrir kennslunni og við hlökkum til samstarfs við hana.

Fræðslunefnd Spretts

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald