• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Námskeiðahald

Vinna í hendi og hringteymingar

Skrifað þann Nóvember 14 2017
  • Print
  • Netfang
Hrafnhildur Helga
Farið verður í hvernig hægt er að notast við vinnu við hendi til að hjálpa hestinum að skilja grunnábendingar og að ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu og líkamlegu jafnvægi.
Grundvöllur árangurs er að hesturinn sé sáttur og skilji ábendingar knapans, hvort sem það er frá jörðu eða á baki.
Einnig verður farið í grunnatriði í hringteymingum og hvernig hægt er að nota það sem viðbót við fjölbreytta þjálfun til að byggja upp réttu vöðvana í hestinum. 
Kennari verður Hrafnhildur Helga Guðmundsd.
Kennt er miðvikudögum í Samskipahöllinni. 4 skipti, 60 mín í senn og hefst 29. nóvember.
4 saman í hóp.
Verð 10.000kr
Skráning fer fram í gegnum http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

Allar námskeiðsfréttir

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Námskeiðahald